6 vikna skoðun
föstudagur 22. júní '07

Hún Arnbjörg fór í 6 vikna skoðun í morgun og var þá mæld hæð og lengd. Hún reindist vera orðin 4190 gr og 56 sm.
Hún er afskaplega góð stúlka, sefur þegar hún að að sofa og drekkur og kúkar eins og herforingi. Hún er líka farin að hjala og brosa til okkar og æfa sig í því að bræða okkur hérna. Ef hún verður eins og eldri systkinin þá efast ég ekki um að hún á eftir að fá sínu fram einstaka sinnum með því einu að brosa til okkar hérna. ;)
Arnbjörg Hjartardóttir
þriðjudagur 15. maí '07

Dóttirin litla hefur fengið nafnið Arnbjörg.
Ekki er aumt að vera nefnd í höfuðið á langömmu sinni. Til að vera viss hringdum við í Öddu ömmu og fengum formlegt leyfi fyrir því að nefna eftir henni.
Þar sem engin önnur stúlka hefur verið nefnd eftir ömmu ættarlauk, héldum við kannski að það væri ekki vel séð, en öðru var nú nær.
Adda amma taldi þetta heiður hinn mesta og tók hugmyndinni fagnandi.
Þeir sem vilja sjá fleiri myndir af dömunni geta gramsað í ljósmyndavefnum, þar er ýmislegt að finna úr ljósmyndasafninu okkar.
...og það var stelpa!
föstudagur 11. maí '07

Já það var stúlka! 3380 gr, 50 cm fædd 02:30.
Um miðnættið kom Anna Rut ljósmóðir. Henni þótti allt vera komið í slíkan gír að hún hóaði í Guðrúnu vinkonu sína og vinnufélaga að koma og aðstoða, ef þyrfti. Skömmu síðar renndi Guðrún í hlað, og gátu leikar þá hafist. Allt gekk þetta eins og samkvæmt uppskrift, hríðar sem jukust og hörðnuðu, og leiddu á endanum til fæðingar sem gekk stórvel.
Marín Ásta var viðstödd og veitti aðstoð, hugrökk og brött, þó ekki litist henni alltaf jafnvel á atið.
Við erum enn aðeins að jafna okkur á því að röðin var brotin.
Hingað til hafa strákar komið á víxl við stelpur, og kveðið svo rammt að því að það hvarflaði aldrei að okkur að annað gæti verið en að hér væri strákur á ferðinni. Ekki svo að skilja að við séum ósátt við stelpu, bara gapandi af undrun; hvernig gat þetta gerst?
Nú er að finna til nafn á litlu dömuna, eitthvað fallegt, eins og hún sjálf.
Set hér inn færslu þegar það finnst.
41 vika +1 dagur
sunnudagur 6. maí '07
Vonandi er mér fyrirgefið að hafa ekki bloggað í gær, en núna er búið að flytja vinnuaðstöðuna mína (tölvuna og allt sem henni fylgir svona nokkurn vegin) í annað herbergi.
"Gamla" tölvuherbergið verður nú gert að barnaherbergi fyrir Stefán og Önnu. Það var raunar alltaf upphaflega planið þegar við fluttum í fyrra sumar að þau myndu hafa þetta herbergi fyrir sig, enda man hann Stefán enþá eftir þeim fyrirætlunum og kallar herbergið stundum "herbergið mitt".
Svo þetta venjulega ...alla vega ef við tökum mið af síðustu blogg færslum... þá er ekkert að gerast í bumbunni og við bíðum bara árfram í rólegheitunum...
40 vikur + 6 dagar
föstudagur 4. maí '07
Ég var nú bara næstum búin að gleima að uppfæra hérna.... en eins og undanfarið.... þá er ekkert að gerast hjá bumbubúanum þannig það það er svo sem ekkert mikið til að segja frá hérna....
Helgi er nú komin heim úr sveitinni, frá ömmu og afa á Akri, en kemur til með að fara að vinna hjá afa sínum á Réttarhóli eftir helgina.
Stefán er svo líklegast á leiðinni heim úr sveitinni með henni Guðrúnu sinni og eflaust ekkert sáttur við að þurfa að fara heim, ef ég þekki hann rétt... Það er nefnilega alltaf svo gaman í sveitinni.
1